Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
Fréttabréf og uppbót á sauðfjárinnlegg
09.06.2020 - Lestrar 685
Þar sem samkomubann kom í veg fyrir hefðbundna bændafundi Búsældar nú í vor höfum við sett saman stutt fréttabréf frá Norðlenska um stöðuna og starfsemina á síðasta ári.
Stjórn ákvað á síðasta fundi sínum að greiða uppbót á sauðfjárinnlegg haustsins 2019.
Lesa meira
Vegna COVID-19
17.03.2020 - Lestrar 782
Kæru viðskiptavinir,
Vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í samfélaginu vegna COVID-19 hefur verið ákveðið að takmarka umferð viðskiptavina og annarra gesta á starfsstöðvar okkar á Akureyri og Reykjavik. Tilgangur þessara aðgerða er að takmarka áhrif kórónaveirunnar á starfsemi fyrirtækisins enda er samkvæmt viðbragðsáætlun almannavarna við heimsfaraldri mikilvægt fyrir framleiðendur til að sjá til þess að dreifing matvæla haldist óskert áfram.
Norðlenska tekur tilmælum yfirvalda mjög alvarlega eins og allir landsmenn. Heilsa og öryggi viðskiptavina okkar og starfsmanna skiptir okkur öllu máli. Við biðjum því viðskiptavini okkar að hafa samband símleiðis eða í tölvupósti. Símanúmer Norðlenska er 460 88 00 og netfang upplysingar@nordlenska.is.
Sölumenn okkar sem sinna stóreldhúsum hafa verið beðnir um að takmarka heimsóknir og hafa samskipti gegnum síma og eða tölvupóst. Hér á heimasíðunni má nálgast símanúmer og netföng allra starfsmanna undir tenglinum "Um Norðlenska".
Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þessar ráðstafanir kunna að hafa í för með sér en meðan neyðarstig almannavarna er virkt verða þessar takmarkanir í gildi.
Með kveðju,
Starfsfólk Norðlenska
Lesa meira
Ný verðskrá fyrir nautakjöt
26.02.2020 - Lestrar 844
Norðlenska hefur gefið út nýja verðskrá fyrir nautakjöt sem tekur gildi 02.03.2020
Nýja verðskráin felur í sér talsverðar breytingar frá fyrri verðskrá en hún tók gildi í kjölfar innleiðingar á nýju kjötmati árið 2018.
Lesa meira




