Fréttir

Mæjuhleifur frá leikskólanum Vinagarði

Þessi nautahakkréttur kemur frá henni Sigrúnu á leikskólanum Vinagarði.  Einfaldur og góður ofnréttur.

600 gr nautahakk
1 tsk blandað krydd ( season all)
1 stk egg
2 msk hveiti (spelt)
1/2 dl mjólk ( má nota kókosmjólk eða vatn vegna mjólkuróþols)
1/2 - 1 tsk  aromat

Létthrært í hrærivél og sett í eldfast mót.

Hjúpur
1 dl tómatsósa
1 msk púðursykur (brúnn sykur)
1/2 tsk sinnep

Hrærið vel sama og hellið yfir kjötblönduna.

Hitað í ofni á 200° í 35 - 40 mínútur


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook