Ný verðskrá fyrir nautgripi
17.04.2026 - Lestrar 3
Breyting hefur verið gerð á verðskrá nautgripa hjá Kjarnafæði Norðlenska. Nýja verðskrá má nálgast undir flipanum bændur eða með því að smella hér.
Breytingar að þessu sinni eru hækkun á stærri flokkum ungneyta um 4% fyrir gripi frá 250-300kg og 6% fyrir gripi yfir 300kg. Auk þess eru komnir nýjir flokkar fyrir bæði ungkýr og kýr yfir 250kg en fram að þessu hafa allir gripir í þeim flokkum yfir 200kg borið sama verð.
Kjarnafæði Norðlenska óskar eftir gripum til slátrunar og tekið er á móti pöntunum í síma 469 4202.




