Fréttir

Lágmarksverð og breytt verðhlutföll fyrir sauðfé haustið 2018

Útgefin verðskrá Norðlenska fyrir sauðfjárinnlegg haustið 2018 er lágmarksverð en verði afkoma með þeim hætti að unnt sé að greiða uppbætur á þessa verðskrá verður það gert, líkt og gert hefur verið á innlegg frá árinu 2017.

Vakin er athygli á breyttum verðhlutföllum milli matsflokka í verðskránni.  Um alllangt skeið hafa hlutföll milli matsflokka breyst lítið en með þeim hlutföllum sem sjá má í verðskránni nú verður breyting á.  Fituflokkar 3 og 3+ eru hækkaðir hlutfallslega þar sem sala og verðmætasköpun hefur þróast á þann hátt að þeir fituflokkar gefa bestu afkomu en verð fyrir fituflokka 1, 4 og 5 gefur aftur á móti hlutfallslega eftir.   Að sama skapi er hlutfallsleg hækkun á matsflokkum E, U og R en lækkun á O og P. 

Með þessu er verið að færa verðskrána nær því að endurspegla þau verðmæti sem Norðlenska getur gert úr hverjum matsflokk við frekari úrvinnslu.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook