Ágúst Torfi lætur af störfum sem forstjóri Kjarnafæðis Norðlenska.
Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri Kjarnafæðis Norðlenska (KN), lætur af störfum í lok mánaðarins eftir farsælt tæplega 11 ára starf. Hann hefur verið forstjóri KN frá sameiningu Kjarnafæðis og Norðlenska árið 2021 og var þar áður framkvæmdastjóri Norðlenska frá 2015.
Ágúst Torfi hefur stýrt KN og áður Norðlenska í gegnum viðburðamikil ár. Sameining Kjarnafæðis og Norðlenska árið 2021 var ein stærsta hagræðingaraðgerð í úrvinnslu landbúnaðarvara um langt árabil og sala félagsins til Kaupfélags Skagfirðinga árið 2024 er upphafið að enn frekari hagræðingu, neytendum og bændum til heilla.
“Þessi ár hjá KN og Norðlenska hafa verið lærdómsrík og gefandi. Hjá fyrirtækinu starfar afar samheldinn og góður hópur sem hefur staðið sig mjög vel á umbreytingatímum. Á þessum árum höfum við náð að hagræða mikið, sameina Kjarnafæði og Norðlenska og loks selja sameinað fyrirtæki til nýrra eigenda sem hafa skýra framtíðarsýn.
Ég kveð Kjarnafæði Norðlenska, stjórnina, samstarfsfólkið og ekki síst þá fjölmörgu bændur sem ég hef verið í reglulegum samskiptum við öll þessi ár, með kærri þökk fyrir samstarfið.” Segir Ágúst Torfi við starfslok.
Stjórn þakkar Ágústi Torfa samstarfið á liðnum árum og óskar honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Gunnlaugur Eiðsson aðstoðarforstjóri mun svara fyrir málefni félagsins meðan annað er ekki ákveðið.




