3,5% viðbótargreiðsla á innlagt dilkakjöt
17.04.2026 - Lestrar 3
Vinna við hagræðingu innan og á milli kjötafurðasviðs KS, KN og sláturhúss SKVH heldur áfram af fullum krafti. Verkefnið þessa dagana snýr að aukinni sérhæfingu á milli starfsstöðva auk þess að fækka öllum óþarfa snertiflötum í flutningi og meðhöndlun frá vinnslu til neytenda. Með væntingar um árangur af þessari vinnu hefur ákvörðun verið tekin um að borga út 3,5 % viðbótagreiðslu miðað við innlagt dilkakjöt haustið 2025.
Útgreiðsludagur til innleggjenda hjá KN er 21. apríl.




