Fréttir

Sigmundur Ófeigsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Norðlenska

Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norðlenska mun láta af störfum innan tíðar samkvæmt gagnkvæmu samkomulagi.  Stjórn félagsins mun auglýsa eftir nýjum framkvæmdastjóra um mánaðarmótin og er undirbúningur þegar hafinn. Sigmundur mun gegna starfinu þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn.

Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Norðlenska. “Sigmundur var ráðinn inn til Norðlenska árið 2001 og hefur stýrt félaginu í gegnum mikla uppbyggingu og náð að samþætta rekstur nokkurra félaga í eitt stórt og öflugt félag. Nú er hins vegar komið að því að leiðir skilji.  Stjórn félagsins þakkar Sigmundi fyrir gott starf. Hann hefur verið öflugur framkvæmdastjóri sem hefur ekki eingöngu sett mark á félagið heldur á geirann í heild sinni. Ég óska honum alls hins besta í framtíðinni.”

Sigmundur Ófeigsson “Ég stend sáttur upp úr stól framkvæmdastjóra og lít til baka með stolti eftir að hafa skapað, með stekum hópi starfsfólks, öflugt og stórt matvælafyrirtæki. Ég vil þakka stjórn félagsins, eigendum og innleggjendum, svo og frábæru samstarfsfólki mínu fyrir gott samstarf. Ég er sannfærður um að þau munu halda áfram að gera gott félag enn betra.”

Norðlenska var stofnað á grunni Kjötiðnaðarstöð KEA árið 2000 er hún var sameinuð Kjötiðjunni á Húsavík. Í kjölfarið keypti félagið þrjár kjötvinnslur Goða hf. Á Akureyri eru höfuðstöðvar fyrirtækisins, stórgripasláturhús og kjötvinnsla, á Húsavík er sauðfjársláturhús og kjötvinnsla, á Höfn er sauðfjársláturhús og í Kópavogi er söluskrifstofa.

Eigandi Norðlenska er Búsæld, félag kjötframleiðenda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á Austur- og Suðausturlandi. Ársvelta Norðlenska árið 2014 var um 5.200 m.kr. Hjá fyrirtækinu eru um 195 stöðugildi að meðaltali.

Nánari upplýsingar veitir Heiðrún Jónsdóttir hdl.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook