Fréttir

Kjöt frá Norðlenska í FISK kompaníi

Eigendur FISK kompanís í Naustahverfi hafa opnað kjötborð í versluninni, þar sem í boði verður kjöt frá Norðlenska. Jóna Jónsdóttir starfsmannastjóri og fleiri frá Norðlenska kíktu í heimsókn og færðu eigendum FISK kompanís blómvönd frá starfsfólki okkar í tilefni dagsins.

„Við hjá Norðlenska erum afar ánægð með samstarfið við FISK kompaní, eigendur fyrirtækisins hafa sýnt mikinn metnað í fiskborðinu og viðskiptavinir sækja til þeirra eftir gæðavöru og góðri þjónustu. Nú bætast kjötvörurnar við og við erum lukkuleg með að þau hafa valið okkur sem sinn samstarfsaðila. Það verður mjög spennandi að taka þátt í þessu verkefni og þróa með þeim vöruúrvalið í samræmi við óskir þeirra viðskiptavina,” segir Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook