Fréttir

Aðalfundur Norðlenska 2015

Norðlenska var gert upp með 48,1 milljón króna tapi árið 2014 á móti 138,4 milljóna króna hagnaði árið 2013.

Markaðsaðstæður voru erfiðar á síðastliðnu ári og samkeppni mikil í öllum kjötgreinum.  Það er mat stjórnenda Norðlenska að mikilvægt sé að hagræða í innlendri framleiðslu og vinna áfram að öflugri vöruþróun og nýsköpun í greininni. 

 „Við vinnum að kappi að því að leita allra tækifæra til að hagræða í rekstri okkar, utanaðkomandi þættir líkt og gengisþróun eru illviðráðanlegir og hefur afkoma af útflutningi farið mjög versnandi að undanförnu.  Innanlandsmarkaðurinn hefur einkennst af miklu framboði af kjöti sem hefur skilað því að Norðlenska hefur tekið hráefnis og aðrar kostnaðarhækkanir á sig að mestu.  Við horfum jákvætt fram á veginn og höfum trú á því að þær aðhalds og hagræðingaraðgerðir sem við höfum gripið til muni skila árangri í náinni framtíð“ segir Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdarstjóri Norðlenska en aðalfundur félagsins fór fram fyrir helgi.

Velta Norðlenska voru rúmir 5 milljarðar í fyrra, rekstrarhagnaður félagsins áður en kemur að afskriftum og fjármagnsliðum (EBITDA) 146,8 milljónir. „Það er mitt mat að Norðlenska búi við mikinn starfsmannaauð, fólkið er tilbúið til  að takast á við erfiðar aðstæður og vera þátttakendur í framtíðar uppbyggingu fyrirtækisins svo ég horfi bjartsýnn fram á veginn,“ segir Sigmundur.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook