Um Norðlenska

Norðlenska matborðið ehf.

Norðlenska matborðið ehf. er eitt stærsta og öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins á sviði kjötvöru.
Norðlenska er með starfsstöðvar á Akureyri, Húsavík, í Reykjavík og á Höfn í Hornafirði. Á Akureyri eru höfuðstöðvar fyrirtækisins, stórgripasláturhús og kjötvinnsla, á Húsavík er sauðfjársláturhús og kjötvinnsla, í Reykjavík er söluskrifstofa og á Höfn er sauðfjársláturhús.

Norðlenska matborðið varð til þann 1. júlí árið 2000 er Kjötiðnaðarstöð KEA og Kjötiðjan Húsavík sameinuðust. Í júlímánuði 2001 festi Norðlenska matborðið kaup á þrem kjötvinnslum Goða hf.
Eigandi Norðlenska er Búsæld, félag kjötframleiðenda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á Austur- og Suðausturlandi. Áætluð ársvelta Norðlenska er um 3.500 m.kr.
Norðlenska er eitt öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins á sviði kjötvöru.

Framkvæmdastjóri Norðlenska er Sigmundur Einar Ófeigsson.
Hjá fyrirtækinu starfa tæplega tvöhundruð manns.

w5786_640 
Stjórn Norðlenska. Standandi frá vinstri: Heiðrún Jónsdóttir og Auður Finnbogadóttir, formaður.
Sitjandi frá vinstri: Ingvi Stefánsson, varaformaður, Aðalsteinn Ingi Jónsson og Geir Árdal.
 

Varamenn í stjórn
Þórarinn Ingi Pétursson
Gróa Jóhannsdóttir
Jón Benediktsson

Fjöldi verðlauna
Gæðamál eru í öndvegi hjá fyrirtækinu og um það vitna m.a. fjölmörg verðlaun sem framleiðsluvörur og starfsfólk Norðlenska hafa unnið til í matvælakeppnum, bæði innanlands og utan.

Helstu vörumerki Norðlenska eru:
logo_godakea_w75bautaburid_w75husavikhangikjot_w75

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning