Norðlenska matborðið ehf.
Norðlenska matborðið ehf. er eitt stærsta og öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins á sviði kjötvöru.
Norðlenska er með starfsstöðvar á Akureyri, Húsavík, í Reykjavík og á Höfn í Hornafirði. Á Akureyri eru
höfuðstöðvar fyrirtækisins, stórgripasláturhús og kjötvinnsla, á Húsavík er sauðfjársláturhús og
kjötvinnsla, í Reykjavík er söluskrifstofa og á Höfn er sauðfjársláturhús.
Norðlenska matborðið varð til þann 1. júlí árið 2000 er Kjötiðnaðarstöð KEA og Kjötiðjan Húsavík
sameinuðust. Í júlímánuði 2001 festi Norðlenska matborðið kaup á þrem kjötvinnslum Goða hf.
Eigandi Norðlenska er Búsæld, félag kjötframleiðenda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á Austur- og Suðausturlandi.
Áætluð ársvelta Norðlenska er um 4.800 m.kr.
Norðlenska er eitt öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins á sviði kjötvöru.
Framkvæmdastjóri Norðlenska er Sigmundur Einar Ófeigsson.
Hjá fyrirtækinu starfa tæplega tvöhundruð manns.
Stjórn Norðlenska skipa: Heiðrún Jónsdóttir, formaður, Ingvi Stefánsson, varaformaður, Sigríður Elín
Sigfúsdóttir, Aðalsteinn Ingi Jónsson og Geir Árdal.
Varamenn í stjórn eru: Þórarinn Ingi Pétursson, Gróa Jóhannsdóttir, Jón Benediktsson
Fjöldi verðlauna
Gæðamál eru í öndvegi hjá fyrirtækinu og um það vitna m.a. fjölmörg verðlaun sem framleiðsluvörur og starfsfólk
Norðlenska hafa unnið til í matvælakeppnum, bæði innanlands og utan.
Helstu vörumerki Norðlenska eru:![]()
![]()







