Noršlenska žįtttakandi ķ verkefninu Virkur vinnustašur
Almennt - mįnudagur 21.nóv.11 12:46 - Lestrar 195
Norðlenska er þátttakandi í verkefninu „Virkur vinnustaður“ sem stýrt er af Virk
starfsendurhæfingarsjóði. Um er að ræða þróunarverkefni til þriggja ára sem snýst um forvarnir á vinnustað og endurkomu
starfsfólks til vinnu eftir veikindi eða slys.
Markmið Norðlenska eru að mótuð sé stefna og vinnulag hjá fyrirtækinu þannig að brugðist sé við veikindum með fyrirsjáanlegum hætti. Einnig að auka þekkingu stjórnenda og starfsmanna um þá þætti í vinnuumhverfinu sem stuðla að velferð og draga úr fjarvistum.
Á meðan á verkefninu stendur verður ýmis fræðsla fyrir stjórnendur og starfsfólk. Fyrsti fræðslu- og vinnufundurinn fór fram á Hótel KEA föstudaginn 18. nóvember sl. Þar var verkefnið kynnt og vinnan sett af stað formlega. Verkefnið tekur til sláturhúss, kjötvinnslu og skrifstofu Norðlenska á Akureyri. Tengiliður er Jóna Jónsdóttir, starfsmannastjóri.





