Fréttir

Jólagjafirnar hrannast upp

Rakel Hönnudóttur og Áskell Bjarnason ganga frá jólagjöfunum.
Rakel Hönnudóttur og Áskell Bjarnason ganga frá jólagjöfunum.

Töluvert er um að fyrirtæki kaupi kjöt beint af Norðlenska í því skyni að gefa starfsmönnum sínum í jólagjöf. „ Þetta hefur verið vinsælt og er svipað í ár og verið hefur undanfarið,” segir Ingvar Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska.

Nóg hefur verið að gera við að ganga frá jólapökkum undanfarna daga. Mörg fyrirtæki færa starfsmönnum sínum að gjöf ýmis önnur matvæli með kjötinu; osta, súkkulaði, kex og sultur, svo dæmi séu tekin, og sér Norðlenska um að pakka öllu þessu inn í fallegar gjafaöskjur.

Rakel Hönnudóttir, knattspyrnumaður úr Þór/KA og ein af „stelpunum okkar” úr landsliðinu, og KA-maðurinn Áskell Bjarnason, vinna við það þessa dagana að pakka inn gjöfunum.

picture_102_640



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning