Fréttir

Hann á afmæli í dag...

Magnús með húfuna góðu í dag.
Magnús með húfuna góðu í dag.
Magnús Sigurólason, þjónustustjóri stóreldhúsa hjá Norðlenska, fagnar 45 ára afmæli í dag. Ofsagt væri að Magnús tæki það náðugt á afmælisdaginn því mikið er að gera í vinnunni rétt fyrir jólin.

Auk hefðbundinna starfa hefur Magnús séð um sölu og afgreiðslu jólagjafa fyrir fyrirtæki að þessu sinni, við annan mann. Þrátt fyrir annríki gaf afmælisbarnið sér þó tíma til þess að setja upp glæsilega jólahúfu sem einn starfsfélaginn færði honum í morgun og hefur reyndar skartað henni í allan dag.

img_0531_640



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning