Gullneminn Grétar
Almennt - mánudagur 29.mar.10 14:50 - Lestrar 436
Grétar Þór Björnsson nemi hjá Norðlenska á Húsavík, sigraði í nemakeppni kjötiðnaðarmanna sem haldin var á Íslandsmóti iðn- og verkgreina í Smáralind í Kópavogi á dögunum, eins og greint var frá á heimasíðunni í síðustu viku. Hér er komin mynd af kappanum þannig að allir gull-drengir fyrirtækisins á mótinu eru þar með sýnilegir!
Nemakeppnin fer þannig fram að hver keppandi fær einn lambskrokk, á að vinna hann og gera kláran í kjötborð. Keppnin er mjög krefjandi, því áhorfendur geta fylgst með nemunum að störfum.





