Fréttir

Fern gullverðlaun Rúnars

Rúnar Traustason, sem vinnur hjá Norðlenska á Húsavík, fékk fern gullverðlaun í fagkeppni kjötiðnaðarmanna um síðustu helgi, eins og fram kemur í fréttinni hér að neðan; fyrir Veisluhangilæri, hangilæri, lifrarpylsu og grafið lambafille. Þá fékk Rúnar tvenn bronsverðlaun, annars vegar fyrir kindakæfu og hins vegar fyrir pressuð svið. Sigmundur Hreiðarsson vinnslustjóri á Húsavík brá myndavélinni á loft í morgun og fangaði Rúnar gulldreng.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning