Fréttir

12 umsóknir um starf verkstjóra

Norðlenska auglýsti nýlega laust starf verkstjóra í viðhaldsdeild. Um nokkuð sérhæft starf er að ræða þar sem þess var m.a. krafist að umsækjendur væru rafvirkjar og/eða vélvirkjar og hefðu reynslu af viðgerðum og viðhaldi tækja. Alls sóttu 12 manns um starfið.

Í þessari viku og næstu verður unnið úr umsóknum og haft samband við umsækjendur. Gert er ráð fyrir að ráðning geti legið fyrir í byrjun árs 2010.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning