„Aldurinn breytist og ummálið vex…”
Norðlenska ákvað á dögunum að gefa félögum í Búsæld vinnugalla. Svala Stefánsdóttir
á skrifstofu Norðlenska á Akureyri sendi bændum póst þar sem hún bauð þeim gallana; Svala, sem er hagmælt eins og margir vita, sendi
þeim erindið að sjálfsögðu í bundnu máli, og hefur nú fengið nokkur svör með sama hætti. Þetta er sannarlega skemmtilegt
krydd í tilveruna.








