Fréttir

Verðskrá dilkakjöts fyrir haustslátrun 2013

Norðlenska birtir í dag verðskrá fyrirtækisins fyrir dilkakjöt í komandi haustslátrun. Helstu breytingar frá verðskrá haustsins 2012 eru þær að meðalverð fyrir lambakjöt hækkar um 10% og verðskrá fyrir fullorðið fé lækkar um 30%. Álagsgreiðslur eftir tímabilum eru óbreyttar milli ára.

Verðskráin er birt í heild sinni undir liðnum „Bændur“ á forsíðu heimasíðunnar og má einnig sjá hér.

Slátrun hefst 4. september á Húsavík og 17. september á Höfn. Boðið verður upp á forslátrun 28. ágúst á báðum stöðum.

Bændur er hvattir til að senda fyrirtækinu sláturfjárloforð eða vera í sambandi við Sigmund á Húsavík/Einar á Höfn í síma, varðandi forslátrun eða annað viðkomandi sláturtíðinni.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook