Flýtilyklar
Fjórir heiðraðir á Húsavík
Fjórir starfsmenn Norðlenska á Húsavík voru heiðraðir við lok sláturtíðar, 27. október 2011. Allir hafa þeir starfað í 30 ár hjá fyrirtækinu. Þetta eru Halldór Sigurðsson frá Sandhólum á Tjörnesi, Þröstur Jónasson frá Sílalæk í Aðaldal, Ragnheiður Jóhannesdóttir frá Klambraseli í Aðaldal og Sigurgeir Jónasson frá Helluvaði í Mývatnssveit.




